Einn af jöklatrukkum Into the glacier. Ljósm. úr safni.

Bíll festist í krapa á leið upp á Langjökul

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bíll frá ferðaþjónustufyrirtækinu Into the glacier var á ferð upp í ísgöng í Langjökli með 37 farþega og leiðsögufólk í gær þegar hann festist í krapa í Geitlandi. Að sögn Birgittu Bjargar Jónsdóttur, rekstrarstjóra Into the glacier, er alltaf öryggisbíll með í för þegar ferðir eru farnar á jökulinn en ekki vildi betur til en svo að sá bíll festist einnig. Var þá kallað á þriðja bílinn til að sækja farþegana. „En sá var á leið niður með farþega og því var bið eftir honum,“ segir Birgitta og bætir við að lögreglu hafi verið gert viðvart um stöðuna. Hún segir enga hættu hafa skapast, veður hafi verið gott og bílarnir vel útbúnir. „Í samráði við lögreglu var ákveðið að kalla út björgunarsveitir í nágrenninu klukkan 21 þar sem búist var við versnandi veðri,“ segir Birgitta. Hún segir að á svipuðum tíma hafi öryggisbíllinn verið losaður og farþegar ferjaðir yfir í þriðja bílinn og í kjölfarið héldu bílarnir af stað niður til byggða aftur og var beiðni um aðstoð björgunarsveita afturkölluð um klukkan 22.\r\n\r\n„Við komuna í Húsafell var farþegum boðið upp á áfallahjálp sem enginn þáði,“ segir Birgitta og bætir við að farþegarnir hafi fengið upplýsingar um hvernig ætti að bera sig að ef óskað yrði eftir aðstoð seinna. „Í samræmi við öryggisreglur okkar metum við alltaf aðstæður áður en haldið er af stað. Það var ekki ófært í gær en það getur alltaf komið fyrir að bílar festist á jökli. Við erum með frábært starfsfólk og í góðu sambandi við viðbragðsaðila, sem við erum þakklát fyrir,“ segir Birgitta. Ekki eru farnar ferðir upp á jökulinn í dag vegna veðurs.",
  "innerBlocks": []
}
Bíll festist í krapa á leið upp á Langjökul - Skessuhorn