
Sylvía og Viktoría Hrund voru hæstánægðar með sigurinn. Ljósm. vaks
Viktoría Hrund vann Hátónsbarkann
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var mikið fjör og mikil stemning í Tónbergi á Akranesi í gærkvöldi þegar Hátónsbarkakeppnin fór fram fyrir fullu húsi. Ellefu söngvarar, átta frá Brekkubæjarskóla og þrír frá Grundaskóla, tóku þátt og kepptu um að verða fulltrúar Skagamanna í söngkeppni SamVest á móti sigurvegurum frá hinum grunnskólunum af Vesturlandi. Sú keppni fer fram í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi að öllum líkindum þriðjudaginn 29. mars en það verður staðfest fljótlega. Sigurvegarinn úr þeirri keppni mun svo fara á stóra sviðið; Söngkeppni SAMFÉS sem verður haldin 30. apríl í Hafnarfirði.\r\n\r\nEins og áður sagði var góð stemning í Tónbergi í gærkvöldi og áhorfendur ansi vel með á nótunum. Kynnar kvöldsins voru vinnufélagarnir úr Arnardal og Brekkubæjarskóla, þeir Guðlaugur Þór Brandsson og Ragnar Ingi Pétursson, og stóðu þeir sig afar vel með hressilegum kynningum og léttu gríni. Söngvararnir stóðu sig allir með prýði, örlítið örlaði á taugaspennu hjá sumum keppendum en það er ósköp eðlilegt enda meira en að segja það að syngja fyrir fullum sal af fólki.\r\n\r\nDómnefnd kvöldsins var skipuð þeim Guðna Hannessyni, Mörtu Lind Jörgensdóttur og Ægi Frey Birgissyni og fengu þau það erfiða verkefni að velja tvo söngvara úr þessum efnilega hópi. Á meðan dómnefndin var að ráða ráðum sínum steig á svið ásamt hljómsveit Hanna Bergrós Gunnarsdóttir, sigurvegari keppninnar í fyrra, og söng lagið Feeling Good með glæsibrag.\r\n\r\nEn svo var komið að stóru stundinni að tilkynna sigurvegara kvöldsins. Í öðru sæti lenti Sylvía Þórðardóttir úr Grundaskóla en hún söng lagið Ain´t No Mountain High Enough sem varð fyrst vinsælt í flutningi Marvin Gaye og Tammi Terrell. Í fyrsta sæti var Viktoría Hrund Þórisdóttir sem söng lagið Stay með Rihönnu. Þær verða því verðugir fulltrúar Skagamanna á SamVest í lok mars.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns var á staðnum og tók nokkrar myndir af keppninni og skemmti sér hið besta ásamt örugglega öllum þeim sem mættu í Tónberg í gærkvöldi. Það er nokkuð ljóst að framtíðin er björt í tónlistarlífi Skagans og það verður að hrósa þeim sem stóðu að keppninni fyrir flotta umgjörð og skemmtilega kvöldstund.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"51854,51855,51856,51857,51858,51859\"]",
"innerBlocks": []
}