Undirbúa nýja starfsemi í bankahúsið í Búðardal

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Athygli vakti á dögunum þegar neðri hæð gamla Búnaðarbankahússins í Búðardal var kynnt á vef Veitingageirans, sem áhugavert viðskiptatækifæri í veitingarekstri, vel staðsett við þjóðveginn vestur á firði. Leifur Steinn Elísson keypti húsið af Arion banka síðari hluta ársins 2019 og fékk það afhent eftir áramótin 2020. Leifur Steinn er Dalamaður í húð og hár, hagfræðingur og lengst af sviðsstjóri og aðstoðarforstjóri Visa Ísland.  Leifur Steinn kveðst í samtali við Skessuhorn vera mjög áhugasamur um að fá líf í húsið, en vegna heimsfaraldurs tók hann til við endurnýjun og viðhald og er húsið að verða tilbúið undir nýja starfsemi. Húsið er á tveimur hæðum og hefur efri hæðin verið endurnýjuð með það að markmiði að leigja þar út herbergi í langtímaleigu, en neðri hæðin var einnig öll endurnýjuð. Þessir hlutar hússins eru nú aðskildir, þar sem gengið er inn á efri hæð utan frá, ólíkt því sem áður var.\r\n\r\nLeifur Steinn sagði í samtali við Skessuhorn að rétt vantaði herslumuninn á að neðri hæðin verði tilbúið til úttektar heilbrigðiseftirlitsins. Auk þess er búið að útbúa salernisaðstöðu, setja gólfhita og flísaleggja alla neðri hæðina. Í rými neðri hæðar bankans var alltaf læst hvelfing, mjög rammgerð, sem vakti áhuga fréttaritara. Leifur segir að það rými sé lítið breytt og geti vel nýst til kælingar eða frystingar. Að endingu upplýsir Leifur Steinn að hann hafi fengið allnokkur viðbrögð. Margir áhugasamir og verið sé að skoða ýmsa möguleika þessa dagana.",
  "innerBlocks": []
}
Undirbúa nýja starfsemi í bankahúsið í Búðardal - Skessuhorn