
Hluti af nemendum MB í léttri útiveru í vikunni. Ljósm. MB
Opið hús í Menntaskóla Borgarfjarðar í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í þessari viku hafa nemendur í Menntaskóla Borgarfjarðar stundað Lífsnám. Inntakið í lífsnáminu byggir á þáttum eins og fjármálalæsi, kynheilbrigði og kynfræðslu, sjálfbærni, jafnrétti, andlegu og líkamlegu heilbrigði og þess háttar. Fyrsti áfangi lífsnámsins hófst á mánudaginn og var þessi vika helguð umfjöllun um kynlíf, kynhneigðir og kynheilbrigði með áherslu á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Jafnframt var fjallað um kynferðislegt-, andlegt- og fjárhagslegt ofbeldi.\r\n\r\nSkipulag vikunnar og innihald áfangans sem ber heitið Alls-kyns, var unnið í samstarfi við nemendur sem fengu tækifæri til að vinna með sérfræðingum á þessu sviði auk þess sem kennarar skólans bjuggu til samþætt verkefni sem nemendur hafa unnið með alla lífsnámsvikuna og munu kynna afrakstur sinn í dag, föstudaginn 11. mars frá klukkan 11 til klukkan 14.\r\n\r\nÁ facebook síðu Menntaskólans má lesa að líf og fjör ásamt uppbyggilegri fræðslu hafi einkennt þessa viku í Menntaskóla Borgarfjarðar. Nemendur hafa unnið af krafti að sínum verkefnum og fengið marga gesti. Sigga Dögg kynfræðingur kom í heimsókn og kjaftaði um kynlíf, María og Gísli frá lögreglunni komu og fræddu nemendur um stafrænt ofbeldi og Mars kom frá samtökunum 78 og var með frábæra fræðslu. Nágranni þeirra, Gísli Einarsson, var gestakokkur á miðvikudaginn og Stefán umsjónarmaður húsnæðis reiddi fram geggjaðan morgunverð.\r\n\r\nÍ gær voru nemendur að leggja lokahönd á verkefnin sín og munu svo sýna hvert öðru og gestum og gangandi afrakstur vinnu sinnar í dag. Eðlilega er passað upp á hreyfingu og munu nemendur byrja daginn á því að hreyfa sig af miklum móð.",
"innerBlocks": []
}