{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kristrún Frostadóttir alþingismaður Samfylkingarinnar hefur verið á ferð um landið og haldið fjölda opinna funda með fólki í þeirra heimabyggð. Fundirnir eru hluti af fundaferð Kristrúnar um landið undir yfirskriftinni „Samræða um framtíðina“ og eru opnir öllu áhugafólki um landsins gagn og nauðsynjar.\r\n\r\n„Ég þurfti að fresta fundum á Snæfellsnesi um daginn vegna ófærðar en ég bæti nú úr því og heimsæki líka Búðardal í leiðinni,“ segir Kristrún í tilkynningu til Skessuhorns.\r\n\r\nFyrirkomulag fundanna er afslappað, þar sem Kristrún leitast fyrst og fremst eftir samtali við fólk og að hlusta eftir ólíkum sjónarmiðum. „Tilgangurinn er að sækja efni og innblástur fyrir þingstörfin á næstu misserum,“ segir hún.\r\n\r\n<strong>Upplýsingar um fundarstaði og fundartíma:</strong>\r\n\r\n<em>ÓLAFSVÍK</em>\r\n\r\nSker\r\n\r\n11. mars kl. 12:00\r\n\r\n<em>GRUNDARFJÖRÐUR</em>\r\n\r\nKaffi 59\r\n\r\n11. mars kl. 17:00\r\n\r\n<em>STYKKISHÓLMUR</em>\r\n\r\nÆðarsetrið\r\n\r\n13. mars kl. 11:00\r\n\r\n<em>BÚÐARDALUR</em>\r\n\r\nVínlandssetrið\r\n\r\n13. mars kl. 15:00",
"innerBlocks": []
}
Kristrún með fleiri opna fundi á Vesturlandi - Skessuhorn