Íbúafundir á mánudaginn vegna sameiningar tveggja sveitarfélaga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samstarfsnefnd um sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar hefur boðað til tveggja íbúafunda til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna. Sameiningarkosningar fara fram laugardaginn 26. mars næstkomandi. Fundunum verður einnig streymt á fésbókarsíðu verkefnisins. „Íbúar eru hvattir til þess að mæta á fundina og kynna sér álit samstarfsnefndar og kynningarefni á vefsíðu verkefnisins. Íbúafundirnir verða tveir; í Stykkishólmskirkju klukkan 17:30 og í félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit klukkan 20.\r\n\r\nÞátttakendur í fundarsal og þeir sem fylgjast með rafrænt geta sent spurningar til samstarfsnefndar í gegnum samráðsforritið menti.com og einnig verður hægt að koma ábendingum og fyrirspurnum á framfæri í fundarsal. Á menti.com er hægt að gefa spurningum annarra atkvæði til að færa þær framar í röðinni eða skrá inn nýja spurningu. Einnig verður boðið upp á spurningar úr sal.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúafundir á mánudaginn vegna sameiningar tveggja sveitarfélaga - Skessuhorn