Hvetja Hvalfjarðarsveit til að bæta við skilgreindu vatnstökusvæði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. föstudaginn 18. febrúar hvatti hafnarstjórn Faxaflóahafna sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit til að bæta við skilgreindu svæði í botni Hvalfjarðar sem mögulegt vatnstökusvæði í endurskoðun sinni á aðalskipulagi sveitarfélagsins.\r\n\r\n„Með því verði haldið opnum möguleikum á áframhaldandi uppbygginu á Grundartanga en forsenda hennar er að svæðinu verði tryggt nægjanlegt vatn til framtíðar,“ segir í fundargerð. Á Grundartanga starfa um 20 iðn- og þjónustufyrirtæki og um 1.110 manns vinna þar að jafnaði, auk þess sem rekja má um 2.100 afleidd störf til starfsemi á svæðinu. Mikill áhugi hefur verið að undanförnu á lóðum á Grundartanga og í nágrenni undir atvinnustarfsemi og krefst það meira vatns.",
  "innerBlocks": []
}