{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sigga Dóra Matthíasdóttir er ný hótelstýra á Laugum í Sælingsdal fyrir sumarið. Sigga Dóra var aðstoðarhótelstýra síðasta sumar og þekkir því vel til svæðisins. „Hér er dásamlegt að vera og ég er rosalega þakklát að hafa fengið þetta starf,“ segir Sigga Dóra ánægð. Hótelið verður opnað 1. maí og ætlar hún að vera með mikið líf á svæðinu í allt sumar.\r\n\r\n„Ég ætla að vera með allskonar skemmtilegar uppákomur fyrir gesti og sveitunga, ég held að það vanti hér á svæðinu. Ég ætla að vera dugleg að fá hljómsveitir til að koma og aðra skemmtikrafta eins og Siggu Kling og fleiri,“ segir Sigga Dóra. „Það var mjög mikið að gera hér síðasta sumar og mikið fjör og ég get sagt að þetta sumar verður ekki síðra. Ég hef verið að stjórna allskonar skemmtikvöldum og svona viðburðum í gegnum árin og því alveg á heimavelli,“ bætir hún við.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51756\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51756 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/AEtlar-ad-hafa-lif-og-fjor-a-Laugum-i-sumar-600x771.png\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"771\" /> Sigga Dóra Matthíasdóttir verður hótelstjóri á Hótel Laugum í Sælingsdal í sumar. Ljósm. aðsend[/caption]",
"innerBlocks": []
}
Ætlar að hafa líf og fjör á Hótel Laugum í sumar - Skessuhorn