Rúmlega tveir þriðju eru hlynntir lagningu Sundabrautar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Rúmlega tveir þriðju landsmanna eru fylgjandi lagningu Sundabrautar samkvæmt niðurstöðu úr nýrri könnun Maskínu. Greint var frá henni á vefnum visir.is. Könnunin var lögð fyrir dagana 7.-14. febrúar og svöruðu henni 926 einstaklingar víðs vegar af landinu. Rúmlega 66% sögðust hlynntir lagningu Sundabrautar burtséð frá því hvort um verði að ræða brú eða göng. 27,5% voru í meðallagi hlynntir lagningu Sundabrautar og 6,2% voru andvígir. Heilt yfir voru karlar hlynntari lagningu Sundabrautar en konur og eldra fólk var líka frekar hlynnt lagningu brautarinnar en yngra fólk. Ekki þarf að koma á óvart að íbúar á Vesturlandi og Vestfjörðum voru töluvert hlynntari lagningu Sundabrautar en íbúar annarra landshluta.",
  "innerBlocks": []
}
Rúmlega tveir þriðju eru hlynntir lagningu Sundabrautar - Skessuhorn