Hluti af málverkasýningu Brynju Brynjars á Bókasafni Akraness. Ljósm. vaks

Hafið, sýning Brynju Brynjars, hefst í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í dag, fimmtudag, verður opnun sölusýningarinnar Hafið, eftir listakonuna Brynju Brynjars á Bókasafni Akraness. Sýningin stendur yfir til 31. mars og er hluti af Vetrardögum. Verk Brynju eru abstrakt (emotional) expressionism málverk.\r\n\r\nBrynja Brynjars er fædd á Akureyri, ólst upp á Ólafsfirði til tólf ára aldurs og hefur búið á Akranesi síðan þá. Að sögn Brynju hefur myndlistin fylgt henni nánast alla tíð en hún fór í Menntaskólann á Ólafsfirði og útskrifaðist þaðan af listnámsbraut árið 2012. Eftir það tók hún sér smá hvíld frá listinni en byrjaði að mála aftur fyrir um þremur árum síðan.Verkin á sýningunni eru frekar nýleg, öll máluð á þessu ári og eru yfir tíu talsins. Brynja segir að það séu miklar tilfinningar í þeim og hún tjái sig beint frá hjartanu.\r\n\r\nSýningin er opin virka daga frá klukkan 10 til 18 og á laugardögum frá klukkan 11 til 14.",
  "innerBlocks": []
}
Hafið, sýning Brynju Brynjars, hefst í dag - Skessuhorn