Fermingarbörn safna fyrir vatnsbrunni með dansi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fermingarbörn í Borgarbyggð ætla að dansa í sólarhring frá föstudegi til laugardags og um leið að safna fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu. „Vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Okkar fermingarbörn hér í sveitinni búa ekki við að geta gengið á milli húsa og safnað pening og ætla þau að leysa það með sólarhrings dansmaraþoni og safna um leið áheitum,“ segir Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur í Reykholti í samtali við Skessuhorn. Alls munu 45 krakkar taka þátt og munu þau dansa á vöktum frá klukkan tvö á föstudaginn til tvö á laugardaginn en auk þess sem þau fá sólarhring fermingarfræðslu og munu vinna ýmis verkefni. Kristín Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi Kirkjunnar ætlar einnig að kíkja til þeirra með fræðslu um söfnunina. „Hún mun segja þeim nákvæmlega af hverju við erum að safna fyrir þessu málefni, hvert brunnurinn sem þau eru að safna fyrir mun fara og svo fá þau að sjá myndband frá því svæði,“ segir Hildur Björk.\r\n\r\nKrakkarnir munu vera í kirkjunni í Reykholti í sólarhring; „og það er ekkert skemmtilegra þegar maður gistir í kirkju en að fara í ratleik svo við munum að sjálfsögðu gera það,“ segir Hildur Björk. „Við erum svo með pizzahóp sem ætlar að baka pizzur en þau hafa skipt verkum og munu sjá að mestu um allt sjálf þennan sólarhring. Það er svo ótrúlega skemmtilegt að gista í kirkju og það býður upp á skemmtilegar umræður sem fermingarbörnin munu taka þátt í svo ég er mjög spennt,“ bætir hún við. Fermingarbörnin hafa sjálf séð um að safna áheitum með því að hringja í fólk og banka upp á hjá nágrönnum sínum. Hver og einn ræður hversu háa upphæð hann gefur og svo þegar krakkarnir hafa lokið við dansinn láta fermingarbörnin alla vita sem hafa skráð sig á þeirra lista og peningnum verður safnað inn á reikning. Spurð hvert hægt sé að leita ef fólk vill styrkja, en hefur ekki fengið símtal frá fermingarbarni, segir Hildur: „Þá er alltaf hægt að hafa samband við okkur eða Heiðrúnu Bjarnadóttur í Borgarnesi og við finnum þá fermingarbarn sem hefur laust pláss á sínu blaði og setjum viðkomandi þar,“ svarar Hildur Björk.",
  "innerBlocks": []
}
Fermingarbörn safna fyrir vatnsbrunni með dansi - Skessuhorn