
Góð mæting var á vinnusmiðju um móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi. Ljósm. arg.
Vinnusmiðja um móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áfanga- og markaðssvið (Á&M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Akraneskaupstaður og Faxaflóahafnir taka nú þátt í samstarfsverkefni um gæði móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi. Verkefnið heitir Nora og kemur í gegnum Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO). Markmið verkefnisins er að heimamenn í hverri höfn leggi línur um hvernig þeir vilja taka á móti farþegum skemmtiferðaskipa sem leggjast að höfn, bæði svo gestirnir njóti þess að koma í heimsókn og samfélagið njóti ávinnings af gestamóttökunni.\r\n\r\nHluti af þessu verkefni var vinnusmiðja sem haldin var á Akranesi í gær, þriðjudaginn 1. mars, þar sem skráðum hagaðilum var boðið að mæta ásamt öðrum sem koma að verkefninu og taka þátt í að setja saman ákveðnar viðmiðunarreglur fyrir gesti skemmtiferðaskipa sem koma á Akranes og gestgjafa þeirra.",
"innerBlocks": []
}