
Vegna Covid-19 hefur ekkert orðið af árlegu jólabingói kvenfélagsins, stærstu fjáröflun þess. Ljósm. 19. júní.
Kvenfélagið 19. júní fer af stað með happdrætti
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á næstu dögum mun Kvenfélagið 19. júní í Borgarfirði hefja sölu á happdrættismiðum í fjáröflunarskyni og verður hægt að kaupa miða til styrktar starfinu á facebook síðu félagsins. Að sögn Rósu Marinósdóttur formanns varð kvenfélagið af sínum stærstu tekjulindum síðustu ár vegna Covid-19, eins og svo mörg önnur fyrirtæki og félög. ,,Okkar árlega jólabingó féll niður í tvígang, árin 2020 og 2021. Sömuleiðis féll Hvanneyrarhátíðin niður en þar höfum við ávallt verið með vinsæla kaffisölu. Því brugðum við á það ráð núna að prófa að halda happdrætti,“ segir Rósa. „Happdrættismiðinn kemur til með að kosta 2000 krónur en hægt verður að kaupa tvo, þrjá eða tíu miða saman á sérstöku afsláttarverði,“ segir Rósa.\r\n\r\nKvenfélagið 19. júní er góðgerðar- og líknarfélag og mun allur ágóði af happdrættinu renna til Ungmennafélagsins Íslendings sem stendur nú í kostnaðarsömum endurbótum á laugarhúsi og umhverfi Hreppslaugar. Að sögn Rósu verður happdrættið afar glæsilegt en dregið verður um 113 vinninga föstudaginn 18. mars næstkomandi. Gefnir verða út 1200 miðar, þannig að vinningslíkur eru tæplega 10% og því er til mikils að vinna. ,,Það er ekki nokkur leið að halda svona veglegt og glæsilegt happdrætti án öflugra styrktaraðila og höfum við í Kvenfélaginu 19. júní verið afskaplega heppnar með að fá frábæran stuðning ár eftir ár frá fjölmörgum fyrirtækjum hér í héraðinu og utan þess. Mig langar að nota tækifærið og þakka þeim innilega fyrir það,“ segir Rósa að lokum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51412\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51412 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Kvenfelagid-19-juni-fer-af-stad-med-happdraetti_3-600x429.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"429\" /> Vinningaskráin, en þar kennir margra og ólíkra grasa, allt frá Flóruspili til heilla heybagga.[/caption]",
"innerBlocks": []
}