
Hér má sjá hvar varnargarðurinn gaf sig. Talsvert neðar er brúin yfir ána. Ljósm. þa.
Vatn rauf varnargarð við Laxá á Breið
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á dögunum uppgötvaðist að hluti af vatni Laxár á Breið, ofan við Rif í Snæfellsbæ, var ekki þar sem hún átti að vera, en eftir töluverða snjókomu síðustu daga hafði myndast krapastífla í ánni fyrir ofan gömlu brúna. Þar er varnargarður sem áin rauf. Guðjón Hrannar Björnsson hjá Vegagerðinni telur að um tíundi hluti af ánni hafi runnið fram hjá þessum varnargarði og hafði myndast stórt lón fyrir norðan ána. Síðastliðinn föstudag var fengin grafa frá Stafnafelli í Snæfellsbæ til að laga garðinn. Einhvern tíma mun taka fyrir vatnið að sjatna en þegar snjóa leysir kemur í ljós hvort einhverjar aðrar skemmdir hafa orðið.",
"innerBlocks": []
}