{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sveitamarkaðurinn Ljómalind í Borgarnesi fékk á dögunum hin virtu Prestige Awards 2021/2022 verðlaun fyrir að vera sveitamarkaður ársins. Frá þessu er greint á heimasíðu fyrirtækisins. „Það er með ótrúlegu stolti sem við segjum frá því að við unnum til verðlauna, en við erum að fá viðurkenningu fyrir áralangt starf - og ótrauð höldum við áfram.“\r\n\r\nUppgangur Ljómalindar hefur verið mikill undanfarin ár. Líkt og margir vita býður Ljómalind upp á matvörur og handverk úr héraði og raunar af öllu Vesturlandi. Það er matsnefnd sem tryggir að allar þær vörur sem fara til sölu í versluninni hverju sinni fá stimpilinn gæðamatur.",
"innerBlocks": []
}
Sveitamarkaðurinn Ljómalind fær virt verðlaun - Skessuhorn