
Strætó á leið 57 framan við N1 í Borgarnesi. Ljósm. úr safni.
Strætó fyrir hjólastóla á landsbyggðinni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á miðvikudaginn fara Vegagerðin og Strætó að fara af stað með þjónustu þar sem boðið er upp á að panta ferð fyrir hjólastóla með leið 57. Landsbyggðarvagnarnir hafa hingað til ekki verið aðgengilegir fyrir hjólastóla en það eru aðeins ákveðið margir vagnar með lyftu fyrir hjólastóla og nú verður hægt að panta slíkan vagn ef þörf er á. „Það þarf að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastól deginum áður en til að byrja með verður þetta aðeins í boði í ákveðnum ferðum og því miður eru bara ákveðnar biðstöðvar sem hægt verður að nota, hjólastólaaðgengi er ekki nógu gott við þær allar,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó. Þær biðstöðvar sem eru aðgengilegar fyrir hjólastóla eru í Mjódd, Akratorgi á Akranesi, Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi, Sauðárkróki og Hofi Akureyri.",
"innerBlocks": []
}