{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Búið er að gefa út rauða viðvörun fyrir Faxaflóa, höfuðborgarsvæðið og Suðurland í kvöld. Hér við Faxaflóa gengur í suðaustan 18-25 m/s með snjókomu eða rigningu síðdegis í dag, með versnandi ferðaveðri og líkum á afmörkuðum samgöngutruflunum. Um klukkan 19 og fram yfir miðnætti verður suðaustan stormur eða rok, 20-30 m/s, með snjókomu eða rigningu. „Líkur á foktjóni og fólki er ráðlagt að ganga frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum. Útlit fyrir samgöngutruflanir og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi,“ segir í aðvörun frá Veðurstofu Íslands.",
"innerBlocks": []
}
Snarversnandi veður þegar líður á daginn - Skessuhorn