Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor skólans ávarpaði útskriftarhópinn og aðra gesti.

112 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alls voru 110 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst á laugardaginn, 48 nemendur með bakkalárgráðu og 62 nemendur með meistaragráðu. Þá luku tveir háskólagátt á Bifröst og voru því samtals 112 nemendur brautskráðir. Brautskráningin fór fram á háskólahátíð í Hriflu, hátíðarsal Háskólans á Bifröst, þeirri fyrstu sem farið hefur fram með hefðbundnu sniði um þó nokkurt skeið sökum heimsfaraldursins.\r\n\r\nAð vanda afhentu deildarforsetar nemendum skírteini sín, Stefan Wendt, að hálfu viðskiptadeildar, Elín H. Jónsdóttir, að hálfu lagadeildar og Njörður Sigurjónsson, að hálfu félagsvísindadeildar. Í lok athafnarinnar ávarpaði rektor Margrét Jónsdóttir Njarðvík hina brautskráðu. Hvatti rektor hinn nýja Bifrastar-árgang m.a. til þess, að láta muna um sig og verða leiðtogar í eigin lífi. Einnig hvatti hún þau til að nýta menntun sína vel. Nýja prófgráðan geti bæði vaxið og rykfallið í höndum þeirra.\r\n\r\nÞá kom í máli rektors einnig fram að fjöldi doktorsmenntaðra starfsmanna við Háskólann á Bifröst hafi tvöfaldast á undanförnum tveimur árum. Samfara því hafi rannsóknavirkni aukist svo um munar. Nemendafjöldi hafi jafnframt aldrei verið meiri við háskólann. Á yfirstandandi haustönn luku, eins og áður segir, 110 háskólanámi. Af 48 nemum í grunnnámi brautskráðust tíu úr félagsvísindadeild, sex úr lagadeild og 32 úr viðskiptadeild, en af þeim 62 sem voru í meistaranámi, brautskráðust fimm úr félagsvísindadeild, fjórir úr lagadeild og 53 úr viðskiptadeild.\r\n\r\nSem kunnugt er hljóta efstu nemendur í annars vegar grunnnámi og hins vegar meistaranámi sín hvor útskriftarverðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Að þessu sinni hrepptu hnossið Heiðrún Jónsdóttir og Axel Ingi Árnason í félagsvísindadeild og Valdís Ósk Óladóttir og Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir í lagadeild. Hins vegar hlutu fjórir nemendur úr viðskiptadeild útskriftarverðlaun, einn úr grunnnámi og þrír úr meistaranámi eða; Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir, Kristinn Vignisson, Jónína Rut Matthíasdóttir og Katrín Valdís Hjartardóttir, en þannig háttar til, að Kristinn, Jónína Rut og Katrín Valdís luku öll meistaranámi með hnífjafnar einkunnir. Hæstu meðaleinkunn á haustönn hlaut svo Kristín Jakobsdóttir, félagsvísindadeild, með 9,1 í meðaleinkunn. Í lagadeild var Pétur Birgisson efstur, með 8,6 í meðaleinkunn og í félagsvísindadeild var það Einar Freyr Elínarson sem var efstur með 8,9.\r\n\r\nÁvarp fyrir hönd útskrifaðra grunnnema flutti Vera Dögg Petrudóttir félagsvísindadeild, Elmar Guðlaugsson fyrir lagadeild og Alma Katrín Einarsdóttir fyrir viðskiptadeild. Ávarp fyrir hönd útskrifaðra meistaranema flutti Marlena Rzepnicka.\r\n\r\nSólveig Hallsteinsdóttir, verkefnastjóri nemendaskrár, leiddi útskriftarathöfnina. Karlakórinn Söngbræður söng fyrir gesti við undirleik Birgis Þórissonar. Stjórnandi kórsins er Viðar Guðmundsson.",
  "innerBlocks": []
}
112 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst - Skessuhorn