Viðbúnaðarstig aukið vegna krapprar mánudagslægðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kröpp lægð mun fara yfir landið annað kvöld og aðfararnótt þriðjudags. Búið er að gefa út appelsínugula viðvörun fyrir nær allt landið, einungis Austurland sem sleppur við þann lit. Lægðin mun valda suðaustan hvassviðri eða stormi, algengt 15-23 m/s. Um kvöldið og nóttina má gera ráð fyrir ýmist rigningu eða snjókomu. Snjórinn getur valdið erfiðri færð á götum og vegum úti og þá er varað við að úrkoma í formi rigningar geti valdið snöggum leysingum, vatnselgir myndast og niðurföll stíflast. Nú er því mikilvægt að fólk hugi að því að hreinsa frá niðurföllum til að koma í veg fyrir vatnstjón. Veðurstofan telur líkur á afmörkuðum samgöngutruflunum.",
"innerBlocks": []
}
Viðbúnaðarstig aukið vegna krapprar mánudagslægðar - Skessuhorn