
Sianni Martin var allt í öllu hjá Snæfelli gegn Ármanni. Ljósm. sá
Snæfell tapaði gegn Ármanni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lið Ármanns og Snæfells mættust á föstudagskvöldið í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram á heimavelli Ármanns í Kennaraháskólanum í Reykjavík. Fyrir leikinn var Ármann í efsta sæti deildarinnar með 26 stig en Snæfell í öðru sæti ásamt ÍR með 20 stig. Í fyrri leik liðanna í deildinni sem fram fór í Stykkishólmi í nóvember vann Ármann nauman sigur, 76:79. Leikurinn á föstudaginn var jafn til að byrja með en í stöðunni 5:4 skoraði Ármann næstu sjö stig og hafði góða forystu eftir fyrsta leikhluta, 20:9. Lítið breyttist stigalega séð í öðrum leikhluta en Ármann þó enn með yfirhöndina og leiddi með 14 stigum í hálfleik, staðan 35:21 fyrir heimastúlkur.\r\n\r\nSnæfell reyndu hvað þær gátu til að komast inn í leikinn í þriðja leikhluta en lítið gekk að saxa á forskotið og flest á svipuðum nótum og áður þegar liðin lögðu á ráðin fyrir fjórða og síðasta leikhlutann, staðan 52:40 fyrir Ármanni. Heimastúlkur skoruðu fyrstu sex stigin í honum og lögðu grunninn að sigrinum. Þó að Ármann hafi aðeins skorað tvö stig gegn níu stigum Snæfells síðustu fimm mínútur leiksins þá var sigurinn aldrei í hættu og sanngjarn sigur Ármanns, 67:59.\r\n\r\nHjá Snæfelli voru þær Sianni Martin og Rebekka Rán Karlsdóttir sem létu eitthvað að sér kveða í leiknum. Martin var með 35 stig og Rebekka Rán með 14 stig og þá var Preslava Koleva með 17 fráköst. Hjá Ármanni var Schekinah Bimpa með 21 stig og 27 fráköst, Jónína Þórdís Karlsdóttir var með 19 stig og 11 fráköst og Telma Lind Bjarkadóttir með 10 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells er gegn Aþenu-UMFK laugardaginn 26. febrúar í Stykkishólmi og hefst klukkan 16.",
"innerBlocks": []
}