{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagamenn tóku á móti liði Selfoss í 1. deild karla á föstudagskvöldið og lauk leiknum með öruggum sigri gestanna, 71:86. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta, jafnt nánast á öllum tölum og ÍA með þriggja stiga forystu þegar honum lauk, 19:16. Heimamenn héldu áfram að stríða gestunum og um rúman miðjan annan leikhluta var staðan 31:24 ÍA í vil. En þá tók Selfoss við sér og var kominn með þriggja stiga forskot þegar hálfleiksflautan gall, 35:38.\r\n\r\nSpennan hélst áfram í leiknum og eftir tæplega fimm mínútna leik í þriðja leikhluta var staðan 40:45 gestunum í vil. En þeir náðu síðan að auka forskotið það sem eftir lifði leikhlutans og voru komnir í góða stöðu fyrir fjórða og síðasta leikhluta, staðan 48:60. Heimamenn voru aldrei líklegir að ná að minnka muninn þar, gestirnir hleyptu þeim ekki neitt og lokastaðan í leiknum, 71:86 fyrir Selfossi.\r\n\r\nHjá ÍA var Christopher Clover stigahæstur með 22 stig, Lucien Christofis var með 19 stig og Davíð Alexander Magnússon með 9 stig. Hjá Selfossi var Gerald Robinson með 30 stig og 10 fráköst, Gasper Rojko með 20 stig og 11 fráköst og Vito Smojver með 11 stig.\r\n\r\nÍA situr á botni deildarinnar sem fyrr með aðeins tvö stig og Hamar þar fyrir ofan með sex stig í níunda sæti deildarinnar. Hrunamenn eru með tólf stig í áttunda sætinu og því verður að telja það ansi líklegt að fall blasi við hjá liðum Hamars og ÍA þegar deildinni lýkur seinni hlutann í mars.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA er gegn Álftanesi föstudaginn 25. febrúar syðra og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}
Skagamenn töpuðu áttunda leiknum í röð - Skessuhorn