
Þær Aldís Petra Sigurðardóttir og Hlín Sigurðardóttir að binda blómvendi og pakka fyrir viðskiptavini.
Ein líflegasta konudagshelgin í þrjátíu ára sögu verslunarinnar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var margt um manninn í versluninni Módel á Akranesi í dag, þegar blaðamaður leit þar við skömmu eftir hádegi. Konudagurinn er jú í dag og fjölmargir sem vilja færa elskunni sinni eða nákomnum ættingja og/eða vini glaðning af því tilefni. Að sögn Guðna Tryggvasonar kaupmanns byrjaði konudagsumferðin í gær og þurfti að fara aukaferð eftir meiri blómum þegar líða tók á daginn. Opnað var klukkan 9 í morgun og hefur stöðugur straumur verið í allan dag að sögn Guðna og útlit fyrir að þetta verði ein stærsta konudagshelgin í versluninni frá upphafi, í þrjátíu ára sögu hennar. Opið verður í Módel til klukkan 16 í dag.",
"innerBlocks": []
}