
Nýja húsnæði RKÍ Akranesi er að Kirkjubraut 12. Ljósm. vaks
Rauði krossinn á Akranesi festir kaup á nýju húsnæði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rauði krossinn á Akranesi hefur keypt nýtt húsnæði fyrir deildina. Það er á Kirkjubraut 12 í rými þar sem Modus var áður til húsa. Að sögn Úrsúlu Áradóttur formanns deildarinnar er nýja húsnæðið mun hentugra fyrir starfsemina og í alfaraleið. Í desember á síðasta ári seldi Rauði Krossinn á Akranesi fyrra húsnæði sitt sem er við Skólabraut 25a.\r\n\r\nAkranesdeild Rauða krossins var stofnuð 4. júní 1941. Félagsmenn eru um 800 og virkir félagar um 50. Starfsemin árið 2020 til 2022 hefur markast af kórónufaraldrinum og legið niðri tímabundið en verið vakin upp þegar sóttvarnarreglur hafa leyft. Skyndihjálparnámskeið hafa verið stór þáttur í starfi deildarinnar. Fyrirtæki og einstaklingar á öllu Vesturlandi hafa nýtt sér námskeiðin og deildin býr að mjög hæfum og áhugasömum leiðbeinendum. Prjónahópur er bæði fjáröflunarhópur og góður félagsskapur kvenna sem búa til og selja prjónavörur. Aðaláherslan hefur verið á sölu á endurnýttum lopapeysum. Heimsóknarvinir er hópur fólks innan Rauða krossins sem nú bíður þess að opið verði fyrir heimsóknir til þeirra sem þess óska. Matarklúbbur og Skvísuhópur eru hópar sem hittast reglulega og vinna að því að rjúfa félagslega einangrun t.d. nýbúa og erlendra íbúa á Akranesi, veita stuðning og mynda tengsl. Börn og umhverfi eru vel sótt námskeið fyrir unglinga sem haldin eru á hverju ári.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51166\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51166 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Raudi-krossinn-festir-kaup-a-nyju-husnaedi_1-600x424.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"424\" /> Úrsúla Árnadóttir, formaður Akranesdeildar RKÍ, og Róbert Gíslason frá Pacta við undirskrift kaupsamningsins.[/caption]",
"innerBlocks": []
}