
Inngangurinn að nýju gufunni í Jaðarsbakkalaug. Ljósm. vaks.
Gufan í Jaðarsbakkalaug opnuð á ný
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í vikunni var opnað útigufubað í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Framkvæmdir hófust snemma á síðasta ári við að breyta karla- og kvennaklefunum í Jaðarsbakkalaug. Gufuklefarnir voru fjarlægðir og ákveðið að setja gufubaðsklefa upp úti, á móts við vaðlaugina. Sú framkvæmd hefur tekið tímana tvenna og gárungarnir á Akranesi töldu líklegast að í ferlinu hefði gufan hreinlega gufað upp.\r\n\r\nEn nú geta allir, sérstaklega þeir sem voru alveg orðnir gufuruglaðir á þessu öllu saman, skellt sér í gufuna, látið líða úr sér mestu þreytuna og notið þess virkilega að slaka á eftir þessa löngu bið.",
"innerBlocks": []
}