{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lið Fjölbrautaskólans á Akranesi og lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ mættust í annarri umferð í átta liða úrslitum Gettu betur sem fram fór fyrr í kvöld. Garðbæingar hófu leik og fengu 11 stig eftir fyrsta hluta keppninnar sem var hraðaspurningar. Skagamönnum gekk ekki vel í þeim og náðu aðeins í þrjú stig þar. Eftir staðreyndavilluspurningar var komið að tólf bjölluspurningum og þar náði FG að svara sex spurningum rétt en FVA aðeins tveimur. Staðan var því 23-7 fyrir FG áður en vísbendingaspurningarnar hófust og þar náði FG tveimur stigum í viðbót áður en keppninni lauk með Þríþrautinni. Þar svöruðu bæði lið rangt, lokastaðan 25-7 fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ og FVA er úr leik þetta árið í Gettu betur.\r\n\r\nSkemmtiatriði FVA í Gettu betur í kvöld var söngur þeirra Mörtu Lind Jörgensdóttur og Heklu Kristleifsdóttur sem sungu lagið Litli fingur úr söngleiknum Fun Home sem er byggt á teiknimyndamyndasögu eftir Alison Bechdel. Leiklistaklúbburinn Melló sem er skipaður nemendum úr FVA stefnir á að frumsýna söngleikinn sem nefnist Útfjör á íslensku 25. mars næstkomandi í Bíóhöllinni á Akranesi.",
"innerBlocks": []
}