
Svipmynd úr einu af útibúum bankans.
Fjármálaráðherra undirbýr sölumeðferð hluta ríkissjóðs í Íslandsbanka
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu frekari eignarhluta í Íslandsbanka. Greinargerð og fylgigögn um áformin hafa verið send fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og þess óskað að umsagnir nefndanna liggi fyrir ekki síðar en þann 2. mars nk. „Þá hefur jafnframt verið óskað eftir formlegri umsögn frá Seðlabanka Íslands um jafnræði bjóðenda, líkleg áhrif sölu á gjaldeyrismarkað, gjaldeyrisforða og laust fé í umferð,“ segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.\r\n\r\nEftir að umsagnir nefndanna og Seðlabanka Íslands liggja fyrir verður tekin endanleg ákvörðun um hvort sölumeðferð eignarhlutarins verði hafin í samræmi við efni greinargerðarinnar. Ráðherra getur í ákvörðun sinni gert breytingar á einstökum þáttum í fyrirhugaðri sölumeðferð, m.a. að teknu tilliti til athugasemda fjárlaganefndar eða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis við greinargerðina.\r\n\r\nVæntanleg sölumeðferð hluta í bankanum er rökstudd þannig í tilkynningu ráðuneytisins: „Áframhaldandi sala hluta í bankanum er í samræmi við ákvæði laga, stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, niðurstöður hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið og eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki. Í eigandastefnunni segir að stuðlað skuli að því að efla og styrkja samkeppni á fjármálamarkaði og að íslensk fjármálafyrirtæki verði til framtíðar í fjölbreyttu, heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi.“",
"innerBlocks": []
}