Peningastefnunefnd Seðlabankans. F.v. Rannveig Sigurðardóttir, Gylfi Zoëga, Ásgeir Jónsson, Katrín Ólafsdóttir og Gunnar Jakobsson.

Stýrivextir hækkaðir um tæp fjörutíu prósent

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentustig, sem nemur 37,5% hækkun í einu stökki. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr tveimur prósentustigum í 2,75%. Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá hafi hagvöxtur verið um einni prósentu meiri á síðasta ári en spáð var í nóvember eða um 4,9%. „Spáð er svipuðum hagvexti í ár. Störfum hefur haldið áfram að fjölga og atvinnuleysi að minnka og er áætlað að framleiðsluslakinn sem myndaðist í kjölfar Covid-19 farsóttarinnar sé horfinn. Óvissa er hins vegar enn mikil.\r\n\r\nVerðbólguhorfur hafa versnað töluvert frá síðasta fundi nefndarinnar og mældist verðbólga 5,7% í janúar. „Undirliggjandi verðbólga hefur einnig aukist og er talin vera ríflega 4%. Þá hafa verðbólguvæntingar á suma mælikvarða hækkað. Hækkun húsnæðisverðs vegur þungt en aðrir innlendir kostnaðarliðir hafa einnig hækkað. Við bætist hækkun alþjóðlegs olíu- og hrávöruverðs. Samkvæmt spá Seðlabankans eru horfur á að verðbólga verði 5,8% á fyrsta fjórðungi ársins og yfir 5% fram eftir þessu ári. Gert er ráð fyrir að verðbólga hjaðni þegar hægir á verðhækkun húsnæðis og alþjóðlegar verðhækkanir fjara út en að hún verði ekki komin að markmiði fyrr en undir lok spátímans,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni.",
  "innerBlocks": []
}
Stýrivextir hækkaðir um tæp fjörutíu prósent - Skessuhorn