Birgitta Þura er rekstrarstjóri Sbarro á Akranesi. Ljósm. vaks

Sbarro opnað á Akranesi í vikunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í byrjun þessa árs var áætlað að veitingastaðurinn Sbarro myndi verða opnaður í húsnæðinu sem Kvikk var áður til húsa síðustu ár á Skagabraut 43 á Akranesi. Síðustu vikur hafa iðnaðarmenn verið að störfum, nýjar innréttingar settar upp en seinkun á opnun hefur orðið vegna tækja sem vantaði en nú er allt komið í hús. Um síðustu helgi voru iðnaðarmenn að ljúka við það helsta fyrir opnun en verið að bíða eftir merkingum á húsið. Samkvæmt síðustu fregnum var áætlað að opna staðinn í þessari viku, líklega seinnipart vikunnar og þá bætist Sbarro við í fjölbreytta flóru skyndibitastaða á Akranesi. Á föstudaginn síðasta kíkti blaðamaður Skessuhorns á staðinn þar sem allt var á fullu við undirbúninginn og þar sat fyrir svörum nýráðinn rekstrarstjóri Sbarro á Akranesi, Birgitta Þura Birgisdóttir. Hún er með mikla reynslu í þessum bransa, en Birgitta Þura hefur á sinni starfsævi unnið í alls 15 ár í Olís, Shell/Stöðinni, Krambúðinni og nú síðast í Subway í Mosfellsbæ.\r\n\r\nAlls hafa verið ráðnir 16 starfsmenn og að sögn Birgittu Þuru verður boðið upp á Sbarro pizzur, stromboli, panini, brauðstangir, salat, pylsur, hamborgara, sem svipar til McDonalds, og franskar. Hamborgararnir og paninið er sett í tæki sem er nefnt geimskipið þar sem sett er á prógramm í tvær mínútur og þá er allt tilbúið. Þá verður ís frá Ísbúð Vesturbæjar á staðnum og einnig bakarí með kaffi, kakó og alls kyns kruðeríi.\r\n\r\nSíðan að sjálfsögðu verður þetta sjoppa og segir Birgitta að það verði ótrúlega mikið af sælgæti í boði í versluninni. Pantaður var svokallaður startpakki frá öllum sælgætisinnflytjendum á landinu og því er sjón sögu ríkari, segir hún.\r\n\r\nOpnunartíminn í versluninni er virka daga frá klukkan átta til 23.30 og frá níu til 23.30 um helgar. Sbarro verður opnað klukkan tíu á virkum dögum og lokar klukkan 22 og um helgar verður Sbarro opnað klukkan tólf og lokað klukkan 22.",
  "innerBlocks": []
}
Sbarro opnað á Akranesi í vikunni - Skessuhorn