{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íþróttanefnd Ungmennafélags Reykdæla í Borgarfirði veitti um helgina verðlaun fyrir mestar framfarir í sundi og körfubolta. Ákveðið var að hafa sama hátt á afhendingunni og í fyrra í ljósi heimsfaraldurs og fór nefndin heim til iðkenda og afhenti þeim verðlaunin.\r\n\r\nViðurkenningu fyrir mestar framfarir í körfubolta fengu Óli Fannar Davíðsson fyrir yngri iðkendur og Steinunn Eiríksdóttir fyrir eldri iðkendur. Viðurkenningu fyrir mestar framfarir í sundi fengu Sunna Karen Arnardóttir fyrir yngri iðkendur og Sesselja Narfadóttir fyrir eldri iðkendur.",
"innerBlocks": []
}
Veittu iðkendum viðurkenningar fyrir framfarir - Skessuhorn