Jón Þór ráðinn til þriggja ára hjá ÍA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Jón Þór Hauksson sem þjálfara meistaraflokks karla til næstu þriggja ára. Þetta kom fram í tilkynningu sem ÍA sendi frá sér í gærkvöldi.\r\n\r\n„Við Skagamenn erum mjög ánægð að fá Jón Þór til að taka við liðinu. Við viljum þakka Vestra fyrir að heimila ÍA að ráða Jón Þór til starfa og gerum okkur grein fyrir að hann var í áhugaverðu starfi á Ísafirði. Jón Þór þekkir okkar starf og áherslur vel. Við erum sannfærð um að hann er sá þjálfari sem leiðir okkur á sigurbraut og kemur ÍA í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu. Það er stutt í mót, en Jón Þór gengur að góðu búi, félagið er vel rekið og fagfólk í öllum stöðum. Ég hlakka mikið til komandi sumars,“ segir Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, í tilkynningunni.\r\n\r\n„Ég vil byrja á því að þakka Vestra fyrir sýndan skilning og að gefa mér kost á að taka við mínu uppeldisfélagi. ÍA er félag sem allir vilja leiða og ég er stoltur af því að stjórn félagsins leitaði til mín. Framtíð knattspyrnunnar á Akranesi er björt, margar stjörnur íslenskrar knattspyrnu koma frá Akranesi og efniviðurinn er góður. Ég tek við öflugum og vel þjálfuðum leikmannahópi. Mér til aðstoðar hjá félaginu er til staðar teymi reynslumikilla og vel menntaðra þjálfara og ég hlakka til samstarfsins. Mitt fyrsta verk verður að hitta samstarfsfólk og leikmannahópinn til að kynna mínar áherslur,“ segir Jón Þór í tilkynningunni.\r\n\r\nJón Þór var aðstoðarþjálfari hjá ÍA árið 2017 og tók við sem aðalþjálfari í lok ágúst eftir að Gunnlaugur Jónsson hætti með liðið. Hann tók svo næst við sem aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Stjörnunnar árið eftir áður en hann var ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins. Jón Þór tók þá ákvörðun að segja af sér sem þjálfari kvennalandsliðsins undir lok árs 2020 eftir að liðið tryggði sig inn á Evrópumótið. Hann stýrði Vestra frá miðjum júlí á síðustu leiktíð er liðið hafnaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar og komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Hann tekur nú við af Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem ráðinn var á dögunum sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins.",
  "innerBlocks": []
}
Jón Þór ráðinn til þriggja ára hjá ÍA - Skessuhorn