
Ferskvatn í rörenda. Ljósm. Verkís.
Hægt að sækja um vatnsveitustyrki fyrir lögbýli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun opnar fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum á morgun, 1. febrúar. Það er í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 180/2016. Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á heimasíðu Matvælastofnunar. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk.\r\n\r\nStuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa, þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Enn fremur telst til stofnkostnaðar þóknun fyrir úttekt á framkvæmdinni. „Vakin er athygli á því að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári en luku ekki framkvæmdum þurfa að sækja um aftur,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}