Gjörbreyting fyrir skemmtanahald og menningargeirann
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Það er að rofa til, við göngum af stað í afléttingarnar með skipulögðum hætti og nú geta viðburðir farið aftur af stað með 500 gestum í sóttvarnarhólfi. Þetta skiptir sköpum fyrir íslenskt menningarlíf. Það er einnig mikilvægt að hafa rýmkað til fyrir veitingastaði, skemmtistaði og krár,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra í yfirlýsingu.\r\n\r\nRíkisstjórnin kynnti á föstudaginn afléttingaráætlun sína á samkomutakmörkunum vegna heimsfaraldursins, en samkvæmt fyrsta fasa hennar verða gerðar breytingar sem hafa talsverð áhrif fyrir menningarstarfsemi og ferðaþjónustu.\r\n\r\nMeð breytingunum er heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju sóttvarnarhólfi á sitjandi viðburðum. Ekki er þörf á hraðprófum, en viðhalda skal eins metra nándarreglu milli óskyldra aðila.\r\n\r\nSkemmtistöðum og krám, er nú heimilað að opna á ný. Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina kl. 00.00.\r\n\r\nÁ þriðjudag kynnti menningarmálaráðherra viðspyrnuaðgerðir til tónlistar og sviðslista, en 450 milljónir eru lagðar í aðgerðirnar. „Það er nauðsynlegt að grípa til aðgerða sem miða að því að efla slagkraft tónlistar og sviðslistageiranna til framtíðar. Við veljum að fara þá leið að styrkja þá sjóði og samtök sem báðar greinarnar hafa aðgengi að og ná þannig til sem flestra. Við einsettum okkur að standa með menningunni í gegnum heimsfaraldurinn og eru þessar aðgerðir liður í því,“ sagði menningarmálaráðherra af því tilefni.",
"innerBlocks": []
}
Gjörbreyting fyrir skemmtanahald og menningargeirann - Skessuhorn