
Bryan Battle reyndist hetja Skallagríms gegn Sindra. Hér í leik gegn Hamri fyrr í vetur. Ljósm. glh
Skallagrímur skellti Sindra í hörkuleik
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skallagrímur tók á móti liði Sindra í 1. deild karla á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Leikurinn var hnífjafn frá upphafi til enda en að lokum var það Skallagrímur sem vann leikinn nánast með minnsta mun, lokatölur 99:97. Jafnt var á öllum tölum í upphafi leiks en eftir rúman fimm mínútna leik náði Sindri sjö stiga forystu, 12:19. Skallagrímur kom síðan til baka og staðan eftir fyrsta leikhluta 25:27 fyrir gestina. Í öðrum leikhluta var þetta á svipuðum nótum, Sindri yfirleitt með yfirhöndina og staðan í hálfleik 50:54.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta skiptust liðin á að ná forystunni, munurinn mest sex stig hjá gestunum á þessum tíma en var orðinn þrjú stig við lok þriðja leikhluta. Staðan var þá 74:77 fyrir Sindra og allt útlit fyrir mjög spennandi síðasta fjórðung leiksins. Það varð raunin þar sem liðin börðust af mikilli ákefð allan tímann enda bæði lið staðráðin í að bera sigur úr býtum í þessum leik. Þegar ein mínúta var eftir af leiknum setti Davíð Guðmundsson niður mikilvægan þrist fyrir heimamenn og kom þeim í 97:94. Gestirnir misstu síðan boltann frá sér í næstu sókn og Skallagrímur því í kjörstöðu að innbyrða sigurinn. Marinó Þór Pálmason hitti síðan ekki úr skoti eftir gegnumbrot, Skallarnir hirtu frákastið en hittu ekki og Sindramenn geystust í sókn þegar um 30 sekúndur voru eftir. Þeir fengu hins vegar dæmt á sig ruðning en strax í næstu sókn misstu Skallarnir boltann klaufalega frá sér. Sindri nýtti sér það með þriggja stiga körfu og staðan jöfn, 97:97, þegar Skallagrímur tók leikhlé og 17 sekúndur eftir af leiknum. Þegar þrjár sekúndur voru eftir var brotið á Bryan Battle og hann setti niður tvö vítaskot af miklu öryggi, allt í járnum en tíminn ansi naumur fyrir gestina og þeir tóku leikhlé fyrir síðustu sóknina. Það var síðan Bryan Battle sem reyndist hetja leiksins því hann varði síðasta skot gestanna og sigur Skallagríms í húsi, 99:97.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skallagrími í leiknum voru þeir Bryan Battle með 24 stig og 11 fráköst, Davíð Guðmundsson var með 21 stig og Arnar Smári Bjarnason með 18 stig. Hjá Sindra var Detrek Browning með 31 stig, Jordan Connors með 20 stig, 14 fráköst og 10 stoðsendingar og Gísli Þórarinn Hallsson með 17 stig.\r\n\r\nSkallagrímur siglir lygnan sjó í deildinni í sjöunda sæti með 16 stig eftir 18 leiki en svo virðist sem lið Hauka úr Hafnarfirði og Hattar frá Egilsstöðum séu á leið upp í Subway deildina. Næsti leikur Skallagríms er gegn Álftanesi syðra fimmtudaginn 3. febrúar og hefst leikurinn klukkan 19:15.",
"innerBlocks": []
}