
Guðrún siglir inn síðasta spölinn. Ljósm. Guðmundur St. Valdimarsson.
Guðrún Þorkelsdóttir kom með loðnu á Akranes
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á níunda tímanum í morgun kom Guðrún Þorkelsdóttir SU-211 frá Eskifirði með fullfermi af loðnu til bræðslu á Akranesi. Þetta er sjötta loðnulöndun úr Guðrúnu á þessari vertíð, en áður hafði skipið landað á Vopnafirði, Eskifirði og Akranesi. Skipið hafði áður aflað 7.418 tonna á vertíðinni sem nú verða um 9000 því fulllestað tekur skipið um 1600 tonn.\r\n\r\nVeður var stillt þegar siglt var síðasta spölinn til hafnar, en síðan hefur tekið að hvessa um allt vestanvert landið. Strax var hafist handa við að dæla aflanum frá borði. Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á Freyju og sendi Skessuhorni.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"50703,50704\"]",
"innerBlocks": []
}