
Björg dregur Gísla Súrsson til hafnar síðdegis á laugardaginn. Ljósm. af.
Fengu í skrúfuna þegar hálfnað var að draga línuna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Línubáturinn Gísli Súrsson GK, sem rær með beitningarvél um borð, fékk trollstykki upp með línunni þegar skipverjar voru að draga 15 mílur norður af Rifi í gær. Þetta hafði þær afleiðingar að trollstykkið fór í skrúfu bátsins og því ekki hægt að draga línuna eða hreyfa bátinn. Skipsverjar báðu því um aðstoð frá Björgunarsveitinni Lífsbjörgu. Björgunarbáturinn Björg frá Rifi fór til aðstoðar og gekk heimferðin vel. Á Breiðafirði var veðrið sæmilegt; kaldi og smá öldugangur. Komið var til hafnar í Rifi klukkan fimm síðdegis og var skorið úr skrúfunni og haldið aftur til veiða um átta leytið.\r\n\r\nHreinn Jónsson skipstjóri á Gísla Súrssyni sagði í spjalli við fréttaritara að þeir hafi aðeins náð að draga um helming línunnar og fram að því hafi verið mjög góður afli. „Við erum með sjö og hálft tonn, en náðum einungis að draga helminginn af línunni áður en trollstykkið slæddist upp. Þetta er allt bolta þorskur sem við erum með,“ sagði Hreinn þegar búið var að landa á laugardagskvöldið. Vel gekk að hreinsa úr skrúfunni og fóru skipverjar út að nýju og drógu seinni hluta línunnar. Lönduðu þeir í Ólafsvík í morgun og reyndist aflinn 14,6 tonn.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50709\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50709 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Fengu-i-skrufuna-thegar-halfnad-var-ad-draga-linuna_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Landað úr bátnum í kafaldsbyl í morgun, en alls kom báturinn með 14,6 tonn á land úr þessum kaflaskipta túr.[/caption]",
"innerBlocks": []
}