Tryggvi Marinósson stendur hér við heyrúllu í Hvítanesi sem pakkað var með 100% endurunnu plasti síðasta sumar. Ljósm. mm.

Umhverfisvænar umbúðalausnir eru verkefni Silfrabergs

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það er þekkt að á tímum samdráttar í efnahagslífi lifnar frumvöðlastarf gjarnan við. Nú á tímum heimsfaraldurs kórónaveiru hefur allskyns sprotastarf blómstrað og dreifileiðir sömuleiðis verið að breytast. Til að mynda hefur vefverslun aldrei aukist jafn hratt og nú síðustu tvö árin. En það er fleira sem ýtt getur undir frjóa hugsun. Umhverfismál eru mörgum ofarlega í huga og sífellt er verið að finna upp nýjar leiðir til að minnka það fótspor sem mannfólkið er að skilja eftir sig. Markmið allra hlýtur jú að vera að við skilum jörðinni hreinni til afkomenda okkar, en við tókum við henni. Meðal nýrra sprotafyrirtækja hér á landi er Silfraberg. Það var stofnað á fyrsta kóvidárinu af tveimur félögum, þeim Tryggva Marinóssyni og Björgúlfi Bóassyni. Tryggvi er frá Hvítanesi í Hvalfjarðarsveit en Björgúlfur er Norðfirðingur sem nú er búsettur á Akranesi. Sérhæfing Silfrabergs er ráðgjöf og sala á umhverfisvænum umbúðalausnum. Fyrirtækjum er boðin ráðgjöf til að minnka notkun plasts sem vissulega er ekki umhverfisvænt og bjóða umhverfisvænni lausnir. Þrátt fyrir stutta rekstrarsögu hefur Silfraberg þegar náð miklum árangri. Þá er framundan hjá fyrirtækinu að hvetja bændur til að nota endurunnið plast til að klæða heyrúllur í. Skessuhorn ræddi við Tryggva Marinósson um fyrirtæki þeirra félaga, en þegar viðtalið fór fram var félagi hans Björgúlfur í túr á togara.\r\n\r\n<em>Sjá Skessuhorn sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Umhverfisvænar umbúðalausnir eru verkefni Silfrabergs - Skessuhorn