Ræðst í dag hvort strákarnir komast í undanúrslit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íslenska karlalandsliðið í handbolta, sem keppir nú á EM í Ungverjalandi, getur átt möguleika á sæti í undanúrslitum með sigri á Svartfjallalandi kl. 14:30 í dag. Eftir að hafa sigrað alla leiki í riðlakeppni og farið upp í milliriðil með tvö stig hefur íslenska liðið verið hálf vængbrotið. Strax fyrir fyrsta leik í milliriðli, sem var gegn Dönum, voru nokkrir af lykilleikmönnum Íslands búnir a ná sér í kórónuveiruna og komnir í einangrun. Íslensku strákarnir sýndu breidd liðsins og að maður getur sannarlega komið í manns stað. Þrátt fyrir að hafa misst nokkra reynslumestu leikmenn liðsins þurftu heimsmeistarar Dana að hafa nokkuð fyrir því að ná sigri, sem þeir þó gerðu. Næstu andstæðingar voru ólympíumeistararnir frá Frakklandi og höfðu þá enn fleiri lykilleikmenn bæst í hóp þeirra smituðu. Þrátt fyrir það áttu íslensku strákarnir stórleik og sigruðu Frakka með átta marka mun, sem er stærsta tap Frakka á EM frá upphafi. Strákarnir spiluðu þriðja leik sinn í milliriðli gegn Króatíu á mánudaginn en Ísland hefur aldrei sigrað Króatíu á stórmóti, og var engin breyting þar á. Leikurinn byrjaði vel og strákarnir náðu góðri forystu snemma í fyrri hálfleik. Svo misstu þeir aðeins taktinn og Króatía náði yfirhöndinni og eftir hörkuspennandi lokamínútur sigraði Króatía með einu marki.\r\n\r\nNú er staðan í riðlinum þannig að Danir eru efstir með 8 stig, Frakkar þar á eftir með 6 stig, Ísland í þriðja sæti með 4 stig og Holland, Svartfjallaland og Króatía með tvö stig hvert. Ísland mætir Svartfjallalandi kl. 14:30 í dag og á enn möguleika á sæti í undanúrslitum með sigri. En til þess að svo verði þurfa Danir að sigra Frakka þegar liðin mætast kl. 19:30 í kvöld.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Ræðst í dag hvort strákarnir komast í undanúrslit - Skessuhorn