Mögulega hafa tvöfalt fleiri smitast en tölur segja til um

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á upplýsingafundi Almannavarna í dag upplýsti Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að vísbendingar séu um að tvöfalt fleiri hafi smitast af kórónaveirunni hér á landi en opinberar tölur segja til um. Þetta byggir hann á niðurstöðu úr mótefnarannsókn Íslenskrar erfðagreiningar. Rannsóknin sýni að um áramót hafi um 20% fólks undir fertugu smitast af veirunni, en hlutfall fólks með staðfest smit var þá um 9%. Hlutfall þeirra sem hafa smitast lækkar hins vegar með hækkandi aldri.\r\n\r\nAð óbreyttu spáir Þórólfur því að miðað við óbreytta útbreiðslu smita styttist nú í endalok faraldursins hér á landi. Búist sé við að um 80% þjóðarinnar muni verða búin að smitast af veirunni eftir hálfan annan mánuð, en það hlutfall dugir til að ná upp hjarðónæmi. „Við þurfum hins vegar að vera undir það búin að eitthvað óvænt komi upp, eins og ný afbrigði veirunnar, sem geta breytt okkar spá,“ sagði Þórólfur Guðnason.",
  "innerBlocks": []
}
Mögulega hafa tvöfalt fleiri smitast en tölur segja til um - Skessuhorn