
Fyrsta stjórn Miðbæjarsamtakanna Akratorgs. Ljósm. aðsend.
Miðbæjarsamtökin Akratorg stofnuð á Akranesi
{ "name": "core/freeform", "attributes": [], "saveContent": "Hópur fólks á Akranesi hefur stofnað miðbæjarsamtökin Akratorg, en fyrsti fundur hópsins var í gærkvöldi. Tilgangur samtakanna er að vernda, efla og byggja upp gamla miðbæinn á Akranesi. Jafnframt að stuðla að viðsnúningi í þróun síðustu ára þannig að miðbærinn verði aftur hringiða verslunar, þjónustu og mannlífs.\r\n\r\nAð samtökunum stendur fjölbreyttur hópur Skagamanna sem á það sameiginlegt að bera hag bæjarfélagsins fyrir brjósti og vill leggja sitt af mörkum til að gera bæinn líflegri og skemmtilegri. „Stofndagsetningin er ekki tilviljun þar sem í dag eru 80 ár síðan Akranes fékk kaupstaðarréttindi. Opinn kynningarfundur verður auglýstur um leið og aðstæður leyfa,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nStjórn samtakanna skipa: Ólafur Páll Gunnarsson formaður, Þorbjörg María Ólafsdóttir varaformaður og meðstjórnendurnir Anna Guðrún Ahlbrecht, Bjarnheiður Hallsdóttir, Guðni Hannesson, Hlédís Sveinsdóttir og Þorgerður Steinunn Ólafsdóttir.\r\n\r\nSjá nánar: <a href=\"https://www.facebook.com/Akratorg\">https://www.facebook.com/Akratorg</a>", "innerBlocks": [] }