Hér má sjá fjarlægð frá upptökum skjálftanna til nokkurra bæja í aðliggjandi sveitum. Myndvinnsla: Stefán Magnússon.

Jörð heldur áfram að skjálfa í uppsveitum Borgarfjarðar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á síðasta sólarhring hafa 37 jarðskjálftar mælst í uppsveitum Borgarfjarðar. Þeir eiga upptök sín á fjalllendinu ofan við Flókadal og Lundarreykjadal, á svæði sem nefnist Þóreyjartungur. Stærsti skjálftinn var í gærkvöldi, 3,3 stig. Frá miðnætti hafa fjölmargir skjálftar orðið á svæðinu en allir verið undir 2 stig. Meðfylgjandi mynd sýnir fjarlægð frá upptökum skjálftanna að nokkrum bæjum í aðliggjandi sveitum.\r\n\r\nPáll Einarsson prófessor í jarðeðlisfræði sagði í samtali við fréttavef mbl.is í gærkvöldi að skjálftar þessir væru fremur smáir, en í sögulegu samhengi væru þeir þó rannsóknarefni. Sagði hann jafnframt að engin ástæða væri til að ætla að þeir tengdust kvikuhreyfingum neðanjarðar, þar sem upptök þeirra væru fjarri eldvirku svæði.",
  "innerBlocks": []
}
Jörð heldur áfram að skjálfa í uppsveitum Borgarfjarðar - Skessuhorn