Björgvin Jón Bjarnason (t.h.) og Kristmundur Einarsson handsala viðskiptin. Ljósm. aðsend.

Hreinsitækni kaupir Snók þjónustu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hreinsitækni ehf hefur keypt allt hlutafé í Snók þjónustu ehf. Seljendur eru Snókur ehf og Snókur eignarhaldsfélag ehf. en fyrirtækin hafa starfsstöð sína á Grundartanga og í Straumsvík. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.\r\n\r\n„Með kaupunum breikkar Hreinsitækni þjónustuframboð sitt og getur nú boðið heildstæðar lausnir fyrir orkusækinn iðnað á Íslandi. Meðal viðskiptavina Snóks þjónustu eru Elkem á Grundartanga og Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Starfsemin fellur vel að starfsemi Hreinsitækni sem þjónustar meðal annars álver Alcoa á Reyðarfirði og kísilver PCC á Bakka. Þjónusta við orkusækinn iðnað kallar á sérhæft og öflugt starfsfólk og miklar fjárfestingar í sérhæfðum búnaði. Með þessum kaupum skipar Hreinsitækni sér sess meðal öflugustu aðila á þessu sviði með sérhæft starfslið og öflugan tækjakost til að sinna fjölbreyttum verkefnum,“ segir í tilkynningu félaganna vegna viðskiptanna.\r\n\r\nSnókur þjónusta ehf sérhæfir sig í þjónustu á sviði innri flutninga, vélaþjónustu, umskipunar og annarra verkefna fyrir fyrirtæki í orkusæknum iðnaði. Félagið hefur starfsstöðvar á Grundartanga og í Straumsvík. Það var stofnað af feðgunum Einari P. Harðarsyni, Kristmundi Einarssyni og Hrafni Einarssyni og fjölskyldum þeirra og hefur verið í eigu fjölskyldunnar frá upphafi. „Við höfum á síðustu árum byggt upp öflugt og gott fyrirtæki sem hefur þjónustað orkusækinn iðnað og lagt ríka áherslu á gæða- öryggis og umhverfismál ásamt góðri og hagkvæmri þjónustu fyrir viðskiptavinina.  Það hefur verið gefandi að vinna náið með fjölskyldunni og öllu því góða starfsfólki sem er lykillinn að því að vel hefur tekist til. Ég vil þakka starfsfólkinu fyrir samstarfið og vel unnin störf og viðskiptavinunum fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt og óska nýjum eigendum alls góðs,“ segir Kristmundur Einarsson framkvæmdastjóri Snóks þjónustu.",
  "innerBlocks": []
}
Hreinsitækni kaupir Snók þjónustu - Skessuhorn