Flytja tillögu um skattleysismörk og lágmarks lífeyri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Inga Sæland og aðrir þingmenn Flokks fólksins flytja í dag tillögu til þingsályktunar á Alþingi um skattleysi launatekna undir 350.000 kr. og 350.000 kr. lágmark til framfærslu lífeyrisþega. Tillagan er eitt forgangsmála Flokks fólksins og hefur verið eitt helsta baráttumál hans á Alþingi undanfarin ár.\r\n\r\nÍ tillögunni felst að fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að leggja fram lagafrumvarp fyrir árslok 2022 sem kveði á um að tekinn verði upp fallandi persónuafsláttur þannig að skattleysismörk verði við 350.000 krónur og að persónuafsláttur falli niður með sveigðu ferli við ákveðin efri mörk. Einnig að breytingar verði gerðar á skiptingu útsvars og tekjuskatts af skattstofni til að jafna tekjuáhrif vegna hækkunar skattleysismarka á milli ríkis og sveitarfélaga. Loks að fullur örorkulífeyrir, endurhæfingarlífeyrir og ellilífeyrir tryggi lífeyrisþegum 350.000 kr. í ráðstöfunartekjur, á mánuði, skatt- og skerðingarlaust.",
"innerBlocks": []
}
Flytja tillögu um skattleysismörk og lágmarks lífeyri - Skessuhorn