
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri kynnti valið á Skagamönnum ársins 2020. Hulda Gests og Sigurður Már tóku við verðlaunum fyrir hönd vinnufélaga sinna.
Þorrablót Skagamanna í streymi á laugardaginn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hið árlega Þorrablót Skagamanna fer fram á laugardaginn og eins og í fyrra verður það í streymi vegna samkomutakmarkana. Blótið verður á svipuðum nótum eins og í fyrra. Sjötíu og níu menningarfélag, árgangur 1979 sér um blótið eins og í fyrra og verður blótinu streymt í beinni útsendingu frá Bárunni Brugghúsi eins og í fyrra. Skessuhorn heyrði hljóðið í Guðrúnu Lind Gísladóttur, sem er í undirbúningsnefnd árgangsins og segir hún að undirbúningurinn hafi gengið mjög vel en kóvidið væri aðeins að stríða þeim. „Við höfum aðeins þurft að endurskipuleggja, bæði svæðið sem við erum að vinna með á Bárunni og svo að skipta út skemmtikröftum sem hafa verið að næla sér í veiruna á síðustu dögum. Sem betur fer eru ekki margir uppteknir þessa helgi og því gengur það ágætlega að fá nýja í staðinn.“\r\n\r\nGuðrún segir að miðasalan hefjist í dag, miðvikudag, og þau geri ráð fyrir því að það verði fleiri en í fyrra því nú geti einungis tíu verið saman í rými en voru tuttugu í fyrra. „Vonandi verður því meiri sala hjá okkur á streyminu, við gerum ráð fyrir helmingi minni partíum og fólk horfi á þetta með fjölskyldunni en að það verði helmingi meira fjör í staðinn.“\r\n\r\nGuðrún Lind segir að þau leggi upp með svipaða dagskrá eins og í fyrra og segir að prestarnir mæti, Skagaskopið verður í boði 1981 árgangsins, happdrættið verður á sínum stað, Iddi Biddi með sketsa, gamlir tónlistarmenn af Skaganum kíki við og vinsælir tónlistarmenn stígi á svið. „Í fyrra vorum við svolítið að finna upp hjólið og það gekk bara mjög vel þannig að við höfum í sjálfu sér þannig mótað formið á þessu hvernig þetta á að vera í ár. Að því leytinu til er þægilegra fyrir okkur að gera þetta núna eins og í fyrra þrátt fyrir að það hefði verið mikið skemmtilegra að vera á Vesturgötunni en það verður vonandi á næsta ári.“\r\n\r\nGuðrún segir að hún hafi verið að líta á streymið frá því fyrra og séð að það er búið að horfa á það alls 2300 sinnum og ljóst að einhverjum hafi þótt þetta gaman en alls seldust tæplega 500 streymi í fyrra. „Aðalbreytingin í ár er sú að við komum ekki nálægt matarmálunum, það kemur beint frá veitingastöðunum og þeir ætla að auglýsa á facebook síðunni hjá okkur. Leiðin til að fá happdrættismiða í ár er því sú að kaupa miða á blótið í streymi en í fyrra fylgdi happdrættismiði með matarbökkunum en það verður ekki í ár.“\r\n\r\nAð lokum segir Guðrún að þetta verði vafalaust góð skemmtun og þau séu spennt fyrir kvöldinu enda ekki mikið annað í boði þetta kvöld. Þau vona bara að fólk taki vel í þetta, setjist fyrir framan viðtækin og eigi gott kvöld saman.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-50471\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/THorrablot-Skagamanna-600x918.png\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}