
Raflínur. Ljósm. úr safni/Rarik
Rafmagn þrisvar farið af í Saurbæ það sem af er ári
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þegar ekki voru liðnar tvær vikur af árinu hafði rafmagn farið þrisvar sinnum af í Saurbæ í Dölum. Fyrst fór rafmagnið rétt eftir að nýja árið gekk í garð en tilkynning um rafmagnsleysi barst Rarik eftir hádegi á nýársdag. Þá fór rafmagnið aftur af á þrettándanum, fimmtudaginn 6. janúar, og í þriðja sinn að kvöldi miðvikudagsins 12. janúar. Skessuhorn heyrði í Karli Matthíasi Helgasyni hjá Rarik á Vesturlandi og spurði hann út í ástandið á rafmagnslínum á þessu svæði. „Fyrst brotnuðu bindingar og skemmdist slá inn á Svínadal og einnig slitnaði strengur við Hvol. Næst bilaði einangrari á millispenni við Lambanes í Saurbæ og svo var þriðja bilunin í bugt á Saurbæjarlínunni,“ segir Karl og bætir við að þetta séu allt ótengdar bilanir og að ástandið á þessu svæði sé slæmt. „Þetta eru margir kílómetrar af línu sem er bara komin á aldur og við höfum ekki undan að skipta út búnaði sem er gamall og slitinn,“ segir hann.\r\n\r\n<strong>17 klukkustundir án rafmagns</strong>\r\n\r\nÞegar blaðamaður talaði við Karl stefndi starfsfólk Rarik á að fljúga með dróna með fram línunni til að skoða ástand hennar nánar. „Ástandið er væntanlega ekki gott en við þurfum að sjónskoða alla línuna til að gera okkur betur grein fyrir því sem þarf að gera. Á þessu svæði getur veðrið orðið þungt og svona gömul lína ræður illa við það, samanber þegar bilunin varð 1. janúar var veðrið svo slæmt að það var ekki hægt að fara og vinna við línuna strax. Við prófuðum að setja inn með fjargæslu en það datt bara út aftur. Það tók vinnuflokk bara um einn og hálfan til tvo tíma að finna bilunina og voru þeir búnir að lagfæra um klukkan sex um morguninn. En það var ekki hægt að fara upp í staurinn til að gera við nærri strax vegna veðurs,“ segir Karl. En rafmagnsleysið í Saurbæ fyrsta dag ársins varði í rúmlega 17 klukkustundir. „Þetta er náttúrulega mjög slæmt á svona svæði sem notar rafmagn til að hitunar. Þetta er bæði vont fyrir íbúa en líka fyrir okkar starfsfólk að vera úti í svona veðrum í bilanaleit og viðgerðum.“\r\n\r\n<strong>Raflínur frá 1965</strong>\r\n\r\nRafmagnslínurnar á þessu svæði eru síðan um 1965 og því orðnar of gamlar að sögn Karls. „Við lögum það sem skemmist og reynum að halda rafmagni á svæðinu en eins og bilunin frá 1. janúar þá er ekki enn búið að laga þá bilun. Við komum straumi á og vonandi hangir línan inni en það þarf að laga meira. Við þurfum að taka rafmagnið af í svona fjóra klukkutíma til að laga það sem er að og við vitum að því fylgja óþægindi fyrir íbúa á svæðinu. En það er mikilvægt að við veljum tíma þar sem er ekki kalt úti því þarna hitar fólk með rafmagni. Þetta er ekki kjörstaða en við gerum okkar besta að halda öllu gangandi,“ segir Karl. Spurður hvort það sé á dagskrá að koma rafmagni á þessu svæði í jörð segir hann það ekki vera fyrr en eftir 2025.",
"innerBlocks": []
}