Versnandi staða í vatnsbúskapnum vegna þurrka

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar hefur ekki verið lakari í sjö ár. Innrennsli á vatnasviðum helstu vatnsaflsstöðva hefur verið mjög dræmt vegna þurrkatíðar, annað haustið í röð, og staða miðlunarlóna því lág. Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að staðan er sérstaklega slæm á Þjórsársvæðinu og hefur Þórisvatn ekki verið lægra síðan veturinn 2013-2014 þegar afhending raforku til stórnotenda með sveigjanlega raforkusamninga var síðast takmörkuð. Þessi tvö ár skera sig úr. „Ástæðan er lítil úrkomu á svæðinu síðastliðin tvö ár sem m.a. hefur valdið mjög lágri grunnvatnsstöðu. Sem fyrr hamla takmarkanir á flutningsgetu því hversu mikið er hægt að flytja á milli landssvæða. Á sama tíma fer eftirspurn eftir raforku hjá Landsvirkjun sífellt vaxandi. Samtals er staða miðlunarforðans nú um 600 GWst lakari en um áramótin 2020/2021. Niðurdráttur miðlunarlóna hófst í byrjun október síðastliðins og hefur verið eindreginn. Ljóst er að grípa þarf til vatnssparandi aðgerða til að verja miðlunarforða kerfisins fram á vor,“ segir í tilkynningunni.\r\n\r\n<strong>Skerðingar allt að 3% af árlegri orkuvinnslu</strong>\r\n\r\nLandsvirkjun hefur þegar gripið til aðgerða hjá viðskiptavinum sem hafa kosið mesta sveigjanleikann. Í desember var framboð af raforku til fiskmjölsverksmiðja takmarkað og nú er ljóst að ekki er til raforka inn á þennan markað fram á vor. Þetta er um 200 GWst skv. áætlunum þessara aðila á tímabilinu janúar-apríl. Þá hefur Landsvirkjun einnig tilkynnt öðrum viðskiptavinum sínum með sveigjanlega raforkusamninga, þ.e. stórnotendum og fjarvarmaveitum, að miðað við óbreytta stöðu muni líklega koma til takmarkana á afhendingu orku til þeirra á næstu þremur til fjórum vikum. Gert er ráð fyrir að takmörkunin geti orðið samtals allt að 250 GWst til viðbótar þeim 200 GWst sem fiskimjölsverksmiðjur eru skertar um. Samtals nemur þessi mögulega takmörkun á  afhendingu orku um 3% af árlegri orkuvinnslu Landsvirkjunar.\r\n\r\nHörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að þótt fyrirtækið sé ávallt viðbúið því að þrengingar í vatnsbúskap setji strik í reikninginn, og viðskiptavinir hafi á því skilning, þá sé þetta fjarri því að vera ákjósanleg staða. „Landvirkjun vill geta afhent viðskiptavinum sínum alla þá raforku sem þeir þurfa. Vissulega eru sumir raforkusamningar beinlínis gerðir á þeim forsendum, að þá megi skerða og það endurspeglast í því verði sem greitt er fyrir orkuna. Við viljum hins vegar vinna að því að unnt verði að tryggja öllum örugga, græna orku,“ segir Hörður.",
  "innerBlocks": []
}
Versnandi staða í vatnsbúskapnum vegna þurrka - Skessuhorn