{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að foreldrum barna 5-11 ára verði boðið að láta bólusetja börn sín gegn Covid-19. Upplýsingar um bólusetningar barna eru m.a. að finna á vefsíðum heilbrigðisstofnana. Á vef Heilbrigðisstofnunar Vesturlands segir að unnið sé að fyrirkomulagi á bólusetningum barna 5-11 ára í landshlutanum, en bólusett verður á öllum starfsstöðvum HVE. Foreldrar hafa fengið tilkynningu í gegnum skólahjúkrunarfræðing um skipulag á hverri starfsstöð. Í dag var byrjað að bólusetja börn í Reykjavík og er það gert í Laugardalshöll.\r\n\r\n„Bólusetning er alltaf val. Þau sem fara með forsjá barns og deila með því lögheimili þurfa að taka afstöðu til bólusetningar barns á skráningarsíðunni skraning.covid.is. Þar er hægt að; skrá barn sitt í bólusetningu, skrá aðra aðila sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu eða hafna/bíða með bólusetningu,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.",
"innerBlocks": []
}
Bólusetning 5-11 ára barna að hefjast - Skessuhorn