{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna víðáttumikillar lægðar, sem væntanleg er síðdegis í dag og gengur yfir landið, hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirði og miðhálendið. Nokkuð misjafnt er hvenær viðvaranirnar taka gildi, en hér við Faxaflóa er það frá klukkan 21 í kvöld og fram undir morgun.\r\n\r\nÍ tilkynningu frá Vegagerðinni segir að með suðaustan storminum í kvöld megi reikna með að hviður fari í allt að 35-45 m/s við Hafnarfjall, utantil á Kjalarnesi sem og í Hvalfirði, eins undir Eyjafjöllum. Stendur viðvörun Vegagerðarinnar frá um kl. 19 í kvöld og fram yfir miðnætti.",
"innerBlocks": []
}
Suðaustan hvellur í kvöld og viðvaranir í gildi - Skessuhorn