Mega nú að uppfylltum skilyrðum útskrifa sig sjálfir
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á því að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geta nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdómseinkennum. Í tilkynningu kemur fram að Covid-göngudeild Landspítala hefur alla jafnan samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eftir skilaboðum frá Covid-göngudeildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu uppfyllt. „Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur jákvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrunar.“",
"innerBlocks": []
}
Mega nú að uppfylltum skilyrðum útskrifa sig sjálfir - Skessuhorn