Svanur er með sérstaka kvörn á gröfuarminum hjá sér sem mokar upp heilu steypuklumpunum og aðskilur gróft malarefni sem er tilvalið í landfyllingar. Ljósm. tfk.

Endurvinna gangstéttar bæjarins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Grundarfjarðarbær hefur verið að endurnýja gangstéttar bæjarins í sumar og haust en töluvert miklu af gömlum steyptum gangstéttum hefur verið mokað upp og sturtað í malarnámu við bæinn. Nú hefur verið ráðinn verktaki til að mylja gangstéttarnar niður svo hægt sé að nota efnið aftur. Svanur Tómasson verktaki úr Snæfellsbæ sér um þetta verk og er þetta töluverður sparnaður svo ekki sé talað um kolefnissporið. Efnið sem þarna er endurunnið er tilvalið í landfyllingar og svipaða vinnslu og sparast mikill flutningskostnaður og vinnslukostnaður af þessari endurvinnslu.",
  "innerBlocks": []
}
Endurvinna gangstéttar bæjarins - Skessuhorn