
Frá sýnatöku á Akranesi í byrjun nóvember. Ljósm úr safni
Yfir tvö þúsund manns í einangrun á öllu landinu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "267 greindust innanlands með kórónuveiruna í gær. 111 af þeim 267 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu eða 42 prósent. 156 voru utan sóttkvíar eða 58 prósent en þetta kemur fram á síðunni covid.is. 2.259 eru nú í einangrun á öllu landinu vegna Covid-19 samanborið við 2.023 í gær. 3.301 eru nú í sóttkví en voru 3.028 í gær og þá eru nú 429 í skimunarsóttkví.\r\n\r\nÁ vef Landspítalans segir að tíu sjúklingar liggi nú inni á Landspítala vegna Covid-19. Meðalaldur inniliggjandi er 64 ár, þrír eru á gjörgæslu og einn þeirra í öndunarvél. Sérstaklega mikill fjöldi smita kom upp á landamærunum í gær, eða 51. 43 virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í átta tilvikum.\r\n\r\nÁ Vesturlandi eru nú 80 í sóttkví og 45 í einangrun. Á Akranesi eru 55 í sóttkví og 26 í einangrun, í Borgarnesi eru 10 í sóttkví og 12 í einangrun, í Grundarfirði eru 7 í sóttkví og 3 í einangrun, í Ólafsvík 4 í sóttkví og 2 í einangrun, í Búðardal eru 4 í sóttkví og í Stykkishólmi eru 2 í einangrun.\r\n\r\nAlls hafa 21.587 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 37 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.",
"innerBlocks": []
}